Fyrirsagnir
Fyrirsagnir eru af nokkrum stærðum allt frá <h1> sem er stærst niður í <h6> sem er minnst.
Þetta er h1
Þetta er h2
Þetta er h3
Þetta er h4
Þetta er h5
Þetta er h6
Leturbreytingar
Nokkrar leturbreytingar eru mögulegar í html-málinu. Hvernig þær birtast fer eftir þeim skyggniforritum sem notuð eru. <b> og </b> afmarka breiðletrun, <i> og </i> afmarka skáletrun, <em> og </em> gefa einnig skáletrun og <strong> og </strong> gefa breiðletrun. Þetta getur þó verið misjafnt eftir skyggniforritum.Efnisgreinar og línuskipti
Efnisgreinar eru afmarkaðar með <p> og </p>. Og eftir hverja efnisgrein kemur auð lína.
Til að þvinga fram línuskipti án auðrar línu er notað <br>.Áður uppsettur texti
Hægt er að sýna texta nákvæmlega eins og hann er uppsettur með bilum og línuskiptum. Þessi texti er afmarkaður með <pre> og </pre>. Sá texti sem er svona afmarkaður er aðeins sýndur í kerfisfonti vélarinnar.
Dæmi:
Íslenska Menntanetið talsími 2400 bás 14400 bás Ekrugata 3, 670 Kópasker 96-52340 96-52180 96-52180 Furuvellir 13, 600 Akureyri 96-12286 96-12186 96-12186 KHÍ v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík 5683230 5683370 5811100
Atriðalistar
Upptalningu atriða er hægt að framkvæma á nokkra vegu. Númeraður atriðalisti er afmarkaður með <ol> og </ol>.
Ónúmeraður listi er afmarkaður með <ul> og </ul>.
Fyrir framan hvert atriði þarf síðan að setja <li>. Athugið <li> er ekki afmarkandi því er nægilegt að setja það einungis framan við hvert atriði. Í númeruðum <ol> lista gefur <li> raðtölur frá 1 og áfram. Aftur á móti í ónúmeruðum <ul> lista koma tákn framan við hvert <li> atriði.
Þriðja gerðin er síðan skýringalistar. Þeir eru afmarkaðir með <dl> og </dl>. Í þessari gerð lista eru tvö atriðatákn <dt> sem er útdrag og <dd> er inndrag.
Dæmi um númeraðan lista:
<ol>
<li>Urta
<li>Huppa
<li>Una
<li>Folda
</ol>
Birtist svona:
- Urta
- Huppa
- Una
- Folda
Dæmi um ónúmeraðan lista:
<ul>
<li>Urta
<li>Huppa
<li>Una
<li>Folda
</ul>
Birtist svona:
- Urta
- Huppa
- Una
- Folda
Dæmi um skýringalista:
<dl>
<dt>Huppa
<dd>Unix-tölva Menntanetsins á Akureyri, Huppa, er HP 9000/720 með 48 Mb minni
<dt>Una
<dd>Unix-tölva Menntanetsins í Reykjavík, Una, er HP 9000/735 með 64 Mb minni
<dt>Folda
<dd>Unix-tölva Menntanetsins í Reykjavík, Folda, er HP 9000/710 með 64 Mb minni
</dl>
Birtist svona:
- Huppa
- Unix-tölva Menntanetsins á Akureyri, Huppa, er HP 9000/720 með 48 Mb minni
- Una
- Unix-tölva Menntanetsins í Reykjavík, Una, er HP 9000/735 með 64 Mb minni
- Folda
- Unix-tölva Menntanetsins í Reykjavík, Folda, er HP 9000/710 með 64 Mb minni
Nafn
Þessi skipun er venjulega notuð til að tilgreina höfund síðunnar og skáletrar textann. <address> </address>Inndregnar tilvitnanir
<blockquote> </blockquote>