Upplýsingaveita

Vefurinn er nýjasta og jafnframt öflugasta upplýsingaveitan á Internetinu. Hægt er að líta á hann sem arftaka gopher. Vefurinn byggir á þeirri tækni sem nefnd hefur verið margmiðlun, en hún miðlar texta, kyrrmyndum, hreyfimyndum og hljóði.

Að skyggnast um í vefnum

Til að skyggnast um í vefnum þarf skyggniforrit (browser). Eins og gefur að skilja eru þau misjöfn að gæðum og bjóða einnig upp á misjafna möguleika. Þau einföldustu sýna eingöngu texta og það aðeins í kerfisfonti. Dæmi um slíkt forrit er Lynx. Tvö algeng myndrænu skyggniforritin eru Netscape og Mosaic. Frávik frá staðli í þessum forritum eru nokkur þannig að texti og myndir birtast ekki eins í þeim öllum.


Efnisyfirlit

Næsti kafli